|
Norðurflug ehf er ungt og kraftmikið félag í þyrlurekstri. Við höfum yfir að ráða þremur þyrlum, misjöfnum að stærð og rekstrarkostnaði sem hver og ein hentar eðli og umfangi verkefna. Við höfum víðtæka þekkingu á landinu og áratuga reynslu af flugi og flugrekstri á Íslandi og Grænlandi þar sem Norðurflug hefur til að mynda unnið að verkefnum við rannsóknavinnu fyrir námavinnslu. Sérsvið okkar er kvikmynda og ljósmyndaflug, svo og hífingavinna með byggingarefni og búnað. Óhætt að fullyrða að með tækjakosti þeim sem við höfum yfir að ráða getum við annast flest verkefni sem snúa að þyrluflugi.
Norðurflug ehf var stofnað sumarið 2006 með kaupum félagsins á Bell 206 Jet Ranger sem hafði verið í einkaeigu hér á landi í nokkur ár. Um haustið var gengið frá kaupum á Eurocopter Dauphin (SA365N) þyrlu frá Japan, og kom hún til landsins í febrúar 2007. Þetta var fyrsta tveggja mótora þyrlan sem sem kom til landsins fyrir einkafyrirtæki. Strax í kjölfarið hófst leit að þriðju þyrlu fyrirtækisins sem er Eurocopter Equreuil (AS350B2). Í júní 2008 var Norðurflugi ehf svo veitt JAR OPS 3 farþegaflugsleyfi af Flugmálastjórn Íslands og sinnum nú bæði verkflugi og farþegaraflugi.
|